| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Darren Farley kemur á árshátíðina
Grínistann Darren Farley þarf varla að kynna fyrir stuðningsmönnum Liverpool en hann er frábær eftirherma þegar kemur að nokkrum fyrrum og núverandi leikmönnum félagsins og auðvitað Rafa Benítez sjálfum.
Áfram höldum við að kynda upp í stemmningunni fyrir árshátíðina í mars en eins og alþjóð veit verður Robbie Fowler heiðursgestur á þar.
Nú kynnum við til leiks Darren Farley sem skaust uppá stjörnuhimininn árið 2008 er YouTube myndband af honum að herma eftir Rafa Benítez, Jamie Carragher og Steven Gerrard varð gríðarlega vinsælt.
Síðan þá hefur Farley verið tíður gestur í mörgum af frægustu knattspyrnutengdum sjónvarpsþáttum Bretlands svo sem BBC Football Focus, Soccer AM og BBC match of the day kickabout.
Á hverjum föstudegi fram að árshátíðinni munum við birta eitt skemmtilegt myndband með Farley og að sjálfsögðu er hér myndbandið sem kom öllu af stað.
Nánari upplýsingar um Farley má sjá hér.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Svolítið hissa að sjá boltann í netinu! -
| Sf. Gutt
Elska félagið og ætla að vera áfram! -
| Sf. Gutt
Sjálfum sér líkir á nýjan leik! -
| Sf. Gutt
Ekkert mál! -
| Sf. Gutt
Í höfn! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| HI
Aftur niður á við -
| Sf. Gutt
Diogo Jota meiddur -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins 28. maí 2024
Fréttageymslan