| Sf. Gutt
Caoimhin Kelleher, varamarkmaður Liverpool, meiddist á æfingu um daginn og verður frá um tíma. Caoimhin lenti í samstuði með þeim afleiðingum að hann fékk skurð á hné. Það þurfti að sauma 12 spor.
Írinn er búinn að missa af einum leik með Liverpool en hann átti að spila í Evrópudeildinni við Union Saint-Gilloise í síðustu viku. Hann hefði svo verið valinn í írska landsliðið sem leikur tvo leiki á næstunni. Hann er búinn að leika tíu landsleiki.
Meiðsli koma venjulega á slæmum tíma. Þessi gera það sannarlega því Caoimhin missir af leikjum sem hann átti að leika. Hann var búinn að spila tvo leiki með Liverpool hingað til á leiktíðinni. Caoimhin nær sér vonandi vel af meiðslunum.
TIL BAKA
Caoimhin Kelleher meiddur

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Spáð í spilin -
| Sf. Gutt
Hann gerði okkur að mönnum! -
| Sf. Gutt
Arne Slot boðar komu sína! -
| Sf. Gutt
Síðasti blaðamannafundur Jürgen Klopp -
| Sf. Gutt
Pep Lijnders kominn með starf -
| Sf. Gutt
Dásamlegt samband! -
| HI
Misstu niður unnin leik -
| Sf. Gutt
Síðasti útileikurinn -
| Sf. Gutt
Næsta víst! -
| Sf. Gutt
Fer Luis Díaz?
Fréttageymslan