Liverpool verður að byrja af miklum krafti gegn Reading til að koma í veg fyrir óvænt úrslit á Anfield annað kvöld. F.A. bikarinn er besta von Liverpool um titil á leiktíðinni og þess vegna má ekki gefa liðinu, sem spilar í næst efstu deild, neina möguleika á sigri. Við höfum oft byrjað leiki of rólega á keppnistímabilinu en við verðum að spila hratt frá fyrstu mínútu gegn Reading. Ef við gerum það þá munu þeir eiga erfitt með að ráða við okkur. En ef við byrjum slaklega þá mun það gefa þeim aukið sjálfstraust.
Reading lék mjög vel þegar liðin gerðu 1:1 jafntefli á heimavelli sínum. Kannski misstu þeir þar af besta möguleika sínum á sigri en það er enginn vafi á því að leikmenn liðsins munu reyna sitt allra besta. Þeir eiga líka eftir að njóta þess að spila á Anfield. Við höfum mátt þola óvænt töp á síðustu leiktíðum gegn liðum eins og Burnley og Barnsley. Ef menn þurfa einhverjar viðvaranir þá þarf ekki annað en rifja upp nýlegan sigur Leeds á Manchester United. Lærdómurinn af þeim úrslitum er einfaldur. Ef maður mætir ekki ákveðinn til leiks fer illa fyrir manni.
F.A. bikarinn er frábær keppni og ég held að hún sé meiri prófraun fyrir Liverpool en Evrópudeildin. Það eru tveir leikir í Evrópukeppninni og þess vegna getur maður komist upp með að gera mistök í einum leik. Það er líka hægt að reikna betur út við hverju er að búast í Evrópuleikjum. En í F.A. bikarnum er bara einn bikar og allt getur gerst. Þess vegna er þessi keppni svona skemmtileg.
Við verðum að koma með leiks á morgun með sjálfstraust eftir að hafa leikið þrjá leiki í röð án taps og drátturinn fyrir næstu umferð ætti líka að hvetja menn til dáða. Þar fengum við heimaleik og það er ekki hægt að biðja um það betra. Ef við náum að vinna Burnley á heimavelli eru góðir möguleikar fyrir hendi að komast enn lengra í keppninni. Þá verða bara 16 lið eftir og þá má hugsa sér að möguleiki sé að vinna keppnina.
Ég veit að stuðningsmennirnir eru mjög spenntir fyrir því að komast á nýja Wembley og ég er viss um að þeir munu mæta vel á morgun til að hvetja leikmennina. Við skulum vona að þessi leikur verði byrjun á góðri rispu. Við þurfum á því að halda eftir dapurt gengi hingað til á keppnistímabilinu.
Liverpool má ekki láta Stoke koma sér úr jafnvægi
Það var ergilegt að leiknum á sunnudaginn gegn Spurs skyldi vera frestað en öryggi stuðningsmanna er mikilvægara en knattspyrnan. Svo gæti svo sem verið að hvíldin hefði komið á góðum tíma og leikmenn, sem hafa verið meiddir, gætu náð sér. Þegar svona slæm tíð er þá er erfiðast að halda mönnum einbeittum og í æfingu.
Þegar svona tíðarfar ríkti, á meðan ég spilaði, var framkvæmdastjórinn vanur að fara með okkur á hótel þar sem við gátum farið í sund og slakað á. En núna hefur margt breyst og aðstæður eru miklu betri. Þess vegna er hægt að gera meira til að halda mönnum í æfingu.
Næsti deildarleikur okkar er við Stoke á laugardaginn og sá leikur verur mikil prófraun. Ég þekki Tony Pulis frá því við vorum að taka þjálfararéttindi í Wales og hann er búinn að vinna frábært starf. Hann þekkir takmörk Stoke vel og lætur liðið einbeita sér að styrkleikum sínum. Við verðum að passa að láta kraftmikinn leik þeirra ekki setja okkur út af laginu og mæta þeim af hörku. Við höfum fengið mjög mörg mörk á okkur eftir horn- og aukaspyrnur á þessari leiktíð og þið getið verið viss um að Tony hefur tekið vel eftir því. Þeir munu reyna að beita föstum leikatriðum af miklum krafti og við verðum að vera á varðbergi.
Rafa Benitez gerir rétt í að selja slaka menn
Það var alveg rétt hjá Rafa Benítez að selja þá Andrea Dossena og Andriy Voronin. Báðir áttu í erfiðleikum með að
aðlagast ensku knattspyrnunni og það var ekki til neins að hafa þá lengur. Þeir náðu ekki að sýna nægan stöðugleika en ég er viss um að þeir eiga eftir að standa sig hjá félögum þar sem álagið er ekki eins mikið. Það mun hugsanlega henta Andrea betur að snúa heim til Ítalíu og Andriy getur náð að byggja upp sjálfstraust sitt í Rússlandi.
Það er óvíst um framtíð Ryan Babel og tilboði Birmingham í hann hefur verið hafnað. En það er betra að halda honum ef stjórinn fær ekki að nota peningana sem myndu fást fyrir hann. Þar fyrir utan virðist útlit á að Ryan vilji vera áfram hjá Liverpool og berjast fyrir sæti sínu. Ef hann ákveður svo þá verður hann að setja undir sig hausinn, leggja hart að sér og grípa næsta tækifæri sem hann fær í liðinu. Það er tími til kominn að hann láti verkin tala inni á vellinum.
Maxi Rodriguez myndi vera góð viðbót
Það er reiknað með því að Maxi Rodriguez komi til Liverpool og komi hann núna í vikunni mun hann styrkja liðið mikið. Ég hef oft í gegnum árin, séð hann spila með Atletico Madrid og ég alltaf haft álit á honum. Hann er ógnandi á hægri kantinum og myndi styrkja liðshópinn. Ef hann á að kosta 1.5 milljónir sterlingspunda þá er það ekki áhættusamt að fá þennan argentínska landsliðsmann og það verða góð kaup í honum. Ég get ekki beðið eftir að sjá hann spila með Steven Gerrard gamla vini sínum Fernando Torres.
Ian Rush