| Sf. Gutt

Christopher Buchtmann Evrópumeistari

Ungliðinn Christopher Buchtmann varð, á mánudaginn, Evrópumeistari með undir 17 ára landsliði Þjóðverja. Þjóðverjar unnu Hollendinga 2:1 í úrslitaleik eftir framlengingu. Christopher var í liði Þjóðverja og lagði upp fyrra mark þeirra. Hann þótti leika lykilhlutverk hjá þýska liðinu í keppninni og lagði meðal annars upp þrjú mörk þegar þýskir burstuðu Englendinga 4:0. Hann skoraði eitt mark í keppninni þegar Þjóðverjar unnu Tyrki 3:1.

Eftir mótið sendi Knattspyrnusamband Evrópu frá sér lista yfir efnilegustu leikmenn mótins. Christopher Buchtmann var einn þeirra sem komust á þennan lista. Það verður gaman að sjá hvað úr þessum piltum verðu. Listinn er hér að neðan.

Patrick ter Mate (Hollandi) - Vitesse/AGOVV Academy Cutodian
Janick Kamber (Sviss) - FC Basel 1893
Marc Muniesa (Spáni) - FC Barcelona
Dennis Appiah (Frakklandi) - AS Monaco
Marco Fossati (Ítalíu) - FC Internazionale
Deniz Herber (Tyrklandi) - FC St. Pauli
Christopher Buchtmann (Þýskalandi) - Liverpool
Jack Wilshere (Englandi) - Arsenal
Lennart Thy (Þýskalandi) - Werder Bremen
Luc Castaignos (Hollandi) - Feyenoord

Christopher Buchtmann kom síðasta sumar til Liverpool frá Borussia Dortmund. Hann leikur venjulega sem vinstri bakvörður eða á vinstri kanti. Hann hefur spilað vel með ungligaliði Liverpool sem leikur til úrslita í Unglingabikarkeppninni á komandi dögum.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan