Dirk Kuyt telur að Liverpool geti komist 
yfir það að hafa misst Xabi Alonso og
gert harða atlögu að titlinum líkt og liðið gerði á síðustu leiktíð. Hollendingurinn viðurkennir að Alonso verði saknað eftir að hann gekk til liðs við Real Madrid fyrir 30 milljónir punda. Kuyt trúir því samt sem áður að Liverpool geti komist af án hans, sérstaklega þar sem ítalska stjarnan Alberto Aquilani mun ganga í raðir liðsins eftir að hafa farið í gegnum læknisskoðun.
Þáttaka Kuyt í 2-0 sigri Liverpool á Lyn í Osló á miðvikudag þýddi það að hann vissi ekkert um þær fréttir að Liverpool hefði náð samkomulagi við Roma um 20 milljón punda kaupverð á Aquilani en hann telur samt að ítalski landsliðsmaðurinn muni verða góð viðbót við hóp Rafa Benítez ef kaupin ganga í gegn.
"Ég var aðeins að einbeita mér að leiknum en ef það er satt að hann sé að fara að skrifa undir og kaupin munu ganga í gegn þá er það gott vegna þess að við erum þá að fá nýjan leikmann með mikil gæði," sagði Kuyt.
"Xabi er mjög góður leikmaður en svona hlutir gerast í knattspyrnunni. Lið taka sífelldum breytingum. Xabi lék mjög vel fyrir Liverpool en það er allt í fortíðinni núna og við verðum að halda áfram. Við verðum að líta fram á veginn. Það er það sem Xabi er að gera með því að ganga til liðs við Real Madrid og við verðum að gera það sama. Við höfum marga góða leikmenn hér enn og við erum allir ákveðnir í að bæta okkur um eitt sæti í deildinni eftir að hafa verið svona nálægt því að ná titlinum á síðasta tímabili."

Aquilani kom til Englands í gær og eftir að hafa lent á Heathrow flugvellinum fór hann rakleiðis í stífa læknisskoðun.
"Mér líður augljóslega illa yfir að yfirgefa borgina mína og Roma," sagði Aquilani. "Ef kaupin ganga í gegn væri það frábært að fá tækifæri til að leika við leikmönnum á borð við Gerrard og Torres og fleirum. Liverpool er eitt stærsta lið heims. Ég er að halda áfram. Ég vil þakka öllum stuðningsmönnum Roma, sem voru eins og nágrannar mínir. Ég hef alltaf verið stuðningsmaður Rome og er enn."
Þrátt fyrir að Aquilani sé að jafna sig eftir aðgerð á ökla þá vonast Liverpool eftir því að hann mundi
fara í gegnum öll próf og muni verða kynntur sem leikmaður Liverpool á næstu dögum.