| Sf. Gutt

Jafntefli hjá varaliðinu

Varalið Liverpool hóf keppni á þessu ári með því að gera 3:3 jafntefli við Manchester City á heimavelli sínum. Liverpool lenti í vandræðum og rétt náði jöfnu. Guðlaugur Victor Pálsson var á varamannabekknum allan tímann. 

Liverpool, sem leiðir deildina, komst yfir á 16. mínútu. Dani Pacheco kom þá boltanum á Jay Spearing sem náði að skora með skoti utan vítateigs. Gestirnir jöfnuðu á 25. mínútu þegar Peter Gulacsi varði vel en Robert Mak náði boltanum og þrumaði í mark. Liverpool komst aftur yfir fimm mínútum seinna þegar Daniel Pacheco skoraði með hörkuskoti utan vítateigs. Liverpool hefði getað bætt við mörkum fyrir leikhlé en það tókst ekki þrátt fyrir færi til þess. 

Liverpool lék vel framan af síðari hálfleik en Manchester City jafnaði á 65. mínútu þegar Alex Nimely skoraði eftir stungusendingu. Mínútu síðar fékk Liverpool annað kjaftshögg þegar James Poole kom City yfir með marki úr vítateignum. Robert hefði svo getað aukið forystuna en hann skaut framhjá. Liverpool sótti af krafti undir lokin og náði að jafna á lokamínútunni. Daninn Nicola Saric, sem kom inn á sem varamaður, náði þá að stýra boltanum í markið af stuttu færi eftir að Daniel Ayala kom boltanum til hans. Liverpool marði jafntefli og heldur efsta sætinu. 

Liverpool: Gulacsi, Darby, Mavinga, Ayala, Threlfall, Spearing, Pacheco, Amoo, Eccleston (Mendy 83. mín.), Plessis (Irwin 56. mín.) og Kacaniklic (Saric 69. mín.). Ónotaðir varamenn: Hansen og Pálsson.

Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Dani Pacheco.
 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan