| Sf. Gutt
Kristján kom inn á sem varamaður í undir 18 ára liði Liverpool sem mætti Manchester United á útivelli í unglingadeildinni. Kristján Gauti kom til leiks á 60. mínútu. Ekkert mark hefði þá verið skorað í leiknum en það breyttist þegar fimm mínútur voru eftir. Tom Ince sendi þá góða sendingu fyrir frá hægri beint á höfuðið á Kristjáni sem skallaði í mark úr teignum. Skallinn var vel framkvæmdur hjá Kristjáni og boltinn steinlá í markinu. Markið tryggði sigur Liverpool og það er varla hægt að byrja feril sinn betur sem leikmaður Liverpool en með að skora sigurmark gegn Manchester United nema þá gegn Everton!
Liverpool: Oldfield, Flanagan, Wisdom, Sama, Robinson, Roberts, Coady, Ince, Ngoo, Adorjan ( Emilsson 60. mín.) og Dalla Valle. Ónotaðir varamenn: Chamberlain, Ellison, Roddan og Ihiekwe.
Kristján Gauti Emilsson gekk til liðs við Liverpool frá F.H. í síðasta mánuði en þetta var fyrsti leikur hans með Liverpool. Undir 18 ára liði Liverpool hefur gengið misjafnlega á þessu keppnistímabili en liðið er enn með í Unglingabikarkeppninni og ekki er ólíklegt að Kristján fái tækifæri í þeirri keppni.
TIL BAKA
Draumabyrjun hjá Kristjáni Gauta!

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan