| Ólafur Haukur Tómasson

Rafa bjartsýnn á að fá Milan Jovanovic

Fréttir um að Milan Jovanovic, framherji Standard Liege, hefði gert samkomulag við Liverpool og myndi ganga til liðs við félagið á frjálsri sölu í sumar þegar samningi hans við Standard Liege rennur út dreifðust eins og eldur í sinu um netmiðla heimsins. Umboðsmaður hans tók fyrir þær fregnir og sagði Jovanovic ekki hafa samþykkt nein félagsskipti en væri í viðræðum við nokkur félög.

Rafael Benítez staðfesti orð umboðsmannsins en er þó bjartsýnn á að samningar við framherjan náist: "Ekkert hefur verið samþykkt enn sem komið er en ég er bjartsýnn á að það verði það sem fyrst."

Mörg lið í Evrópu eru í baráttunni um Jovanovic sem hefur skorað tæplega eitt mark í öðrum hverjum leik með Standard Liege og var valinn besti leikmaður belgísku deildarinnar á síðustu leiktíð. Meðal þeirra liða sem eru sögð vera í baráttunni við Liverpool eru Juventus, AC Milan, Atletico Madrid og Valencia.

Rafael Benítez leitar að framherja til að dreifa álaginu með Fernando Torres og er Jovanovic góður kostur þar sem hann bæði fæst frítt og hann getur einnig spilað sem vinstri kantmaður.

Einnig hafa verið sögur um að  Liverpool bíði eftir svari frá framherjanum Marouane Chamakh sem einnig verður samningslaus í sumar en ekki er víst hvort verði af þeim skiptum þar sem hann hefur lýst yfir áhuga á að fara til Arsenal en það verður bara að bíða og sjá.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan