| Grétar Magnússon
Rafael Benítez segir baráttuna um fjórða sætið vera það harða að leikmenn sínir hafi nánast ekkert svigrúm til að misstíga sig einu sinni. Liðið situr nú í sjötta sæti deildarinnar stigi á eftir Tottenham og Manchester City og á síðarnefnda liðið leik til góða.
Aston Villa eru svo ekki langt fyrir neðan með tvo leiki til góða og Benítez veit að mistök á þessu stigi tímabilsins gætu reynst dýrkeypt.
Hann sagði: ,,Manchester City, Tottenham og Aston Villa verða hættuleg og við megum ekki gera nein mistök."
,,Við vitum að síðasta ár var mjög gott stigalega séð (86 stig) og núna erum við í annari og erfiðari stöðu vegna þess að væntingarnar voru mjög miklar."
,,Þetta er mjög erfitt því það eru þrjú eða fjögur lið sem eru mjög jöfn."
Nú um helgina er leiki í 8-liða úrslitum FA-Bikarsins sem þýðir að helstu keppinautar Liverpool eiga ekki deildarleik. Með sigri gegn Wigan á mánudagskvöldið gæti liðið því skotist upp í fjórða sætið.
,,Við verðum að halda áfram þessari spilamennsku og sanna, sýna öllum öðrum, að við erum nógu góðir," bætti Benítez við. ,,Ég vil vera jákvæður og við munum spila vel og halda áfram að sigra."
TIL BAKA
Varla möguleiki á því að misstíga sig
Rafael Benítez segir baráttuna um fjórða sætið vera það harða að leikmenn sínir hafi nánast ekkert svigrúm til að misstíga sig einu sinni. Liðið situr nú í sjötta sæti deildarinnar stigi á eftir Tottenham og Manchester City og á síðarnefnda liðið leik til góða.Aston Villa eru svo ekki langt fyrir neðan með tvo leiki til góða og Benítez veit að mistök á þessu stigi tímabilsins gætu reynst dýrkeypt.
Hann sagði: ,,Manchester City, Tottenham og Aston Villa verða hættuleg og við megum ekki gera nein mistök."
,,Við vitum að síðasta ár var mjög gott stigalega séð (86 stig) og núna erum við í annari og erfiðari stöðu vegna þess að væntingarnar voru mjög miklar."
,,Þetta er mjög erfitt því það eru þrjú eða fjögur lið sem eru mjög jöfn."
Nú um helgina er leiki í 8-liða úrslitum FA-Bikarsins sem þýðir að helstu keppinautar Liverpool eiga ekki deildarleik. Með sigri gegn Wigan á mánudagskvöldið gæti liðið því skotist upp í fjórða sætið.
,,Við verðum að halda áfram þessari spilamennsku og sanna, sýna öllum öðrum, að við erum nógu góðir," bætti Benítez við. ,,Ég vil vera jákvæður og við munum spila vel og halda áfram að sigra."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

