| Sf. Gutt

Philippe Coutinho valinn í landslið Brassa



Philippe Couthino hefur verið valinn í landslið Brassa. Hann var ekki með liðinu sem fékk hraklega útreið á heimsmeistaramótinu í sumar en nýi landsliðsþjálfarinn Dunga beið ekki boðanna og valdi piltinn í fyrsta landsliðshóp sinn. Brasilíumenn mæta Kólumbíu og Ekvador í vináttuleikjum í næsta mánuði.

Philippe hefur leikið einn landsleik fyrir Brasilíu fram til þessa en það er næsta víst að hann á eftir að bæta vel við þá tölu á komandi árum. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan