| Grétar Magnússon

Getraun - rétt svör

Við drógum í getrauninni áðan en spurt var gegn hvaða liði Luis Suarez hefði skorað þrjár þrennur á ferli sínum með Liverpool.

Rétt svar er að sjálfsögðu Norwich City. Fyrsta þrenna hans gegn liðinu kom þann 28. apríl 2012 í 0-3 sigri, voru þetta síðustu mörk hans fyrir liðið það tímabil en alls urðu mörkin 17 í 39 leikjum í öllum keppnum.

Næsta þrenna kom aftur á útivelli en nú í 2-5 sigri þann 29. september 2012. Alls skoraði Suarez 30 mörk í 44 leikjum tímabilið 2012-13.

Síðasta þrenna, sem var líka ferna Suarez gegn Norwich leit svo dagsins ljós 4. desember í fyrra í 5-1 sigri. Suarez skoraði fyrstu fjögur mörk leiksins og voru þau hvert öðru glæsilegra.

Vinningshafarnir að þessu sinni eru þrír:

Óskar F. Jóhannsson
Kt. 140555-2669

Þórður Örn Stefánsson
Kt.261096-2269

Bjarki F. Bergmann Benediktsson
Kt. 231190-3179

Við óskum þeim til hamingju með að hafa hreppt ævisögu Suarez, haft verður samband við þá til að koma vinningunum til þeirra.

Næsta spurning í getrauninni fer í loftið í fyrramálið, þá verða aftur dregnir út þrír vinningshafar.






TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan