| Grétar Magnússon

Coutinho skrifar undir nýjan samning

Í dag var tilkynnt að Philippe Coutinho hafi skrifað undir nýjan samning við Liverpool til ársins 2020.

Coutinho var keyptur til félagsins í janúar árið 2013 og hefur spilað alls 81 leik fyrir félagið og skorað í þeim 10 mörk.

Skömmu eftir að hafa skrifað undir sagði Coutinho: ,,Ég er mjög ánægður. Það er draumur að rætast að spila fyrir þetta frábæra félag og vera hluti af þessu liði."

,,Í dag hef ég skrifað undir langan samning og mér líður mjög vel. Þetta er frábært félag og stuðningsmennirnir hafa ávallt stutt við mig, ég hef því verið mjög áhugasamur um að skrifa undir þennan nýja samning síðan viðræður hófust. Í dag er því mikill gleðidagur."

Hann bætir við: ,,Þetta er svo þýðingamikið. Félagið hefur gefið mér tækifæri til að spila og hafði trú á mér því ég var lítið að spila hjá Inter Milan. Móttökurnar hafa verið frábærar frá mínum fyrsta degi hér. Ég segi það oft að Liverpool er stór fjölskylda og ég er ánægður hluti af henni."

Brasilíumaðurinn hefur spilað frábærlega að undanförnu og var hann t.d. valinn leikmaður mánaðarins hjá Liverpool í desember. Hann átti svo stoðsendingu í báðum mörkum liðsins gegn West Ham um helgina.



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan