| Sf. Gutt

Vil vera áfram hjá Liverpool!


Einhverjir fjölmiðlar hafa síðustu vikurnar gert því skóna að Jordan Henderson væri mögulega með það í huga að yfirgefa Liverpool. Þær vangaveltur eru tilkomnar vegna þess að það er farið að styttast í gildandi samningi Jordan við Liverpool. Hann svarar þessu í dag með því að segjast vilja vera áfram hjá Liverpool og það lengi.

,,Ég elska að spila knattspyrnu með Liverpool og ég vil vera þar í mörg ár í viðbót. Hvað samninginn minn varðar þá held ég að allir séu að gera úlfalda úr mýflugu. Ég læt bara umboðsmanninn minn og félagið finna út úr því og það hefur bara sinn gang. Ég vinn bara að því að gera mitt besta fyrir félagið og landsliðið."


,,Við erum með frábæra leikmenn hjá Liverpool. Bæði leikmenn sem nú þegar eru mjög góðir og eins marga efnilega. Við erum með ungt lið sem mikið býr í. Stór hluti okkar ætlar sér sigursæld og að vinna titla. Ég hef virkilega trú á að við getum það."

Eftir þessi orð Jordan Henderson er best að slaka á og vonast til að allt gangi eftir eins og hann hefur hug á. Sem sagt að samningagerð milli umboðsmanns hans og fulltrúa Liverpool gangi upp og hann geri nýjan samning við Liverpool og spili þar næstu árin.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan