| Heimir Eyvindarson

Origi sá þriðji fljótasti í deildinni


Divock Origi er í þriðja sæti yfir þá leikmenn í Úrvalsdeild sem hafa tekið hraðasta sprettinn á þessari leiktíð. Belginn hefur mælst á rúmlega 35 km. hraða.

Þessar upplýsingar má sjá í EA Sports Player Performance Index, en Origi er eini leikmaður Liverpool sem kemst inn á topp 10 listann. Nýliðar Leicester eiga hinsvegar þrjá menn á listanum, með markahrókinn Jamie Vardy í efsta sæti.

Topp 10 listinn lítur svona út:

1. Jamie Vardy, Leicester – 35.44km/klst.

2. Jeffrey Schlupp, Leicester – 35.26km/

3. Divock Origi, Liverpool – 35.15km/klst.

4. Kyle Walker, Tottenham – 35.09km/klst.

5. Billy Jones, Sunderland – 35.07km/klst.

6. Jesus Navas, Man City – 35.06km/klst.

7. Marc Albrighton, Leicester – 35km/klst.

8. Victor Moses, West Ham– 35km/klst.

9. Joshua King, Bournemouth – 34.99km/klst.

10. Cameron Jerome, Norwich – 34.97km/klst.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan