| Sf. Gutt

Jordan Henderson farinn að æfa!

Jordan Henderson er farinn að æfa af fullum krafti. Fyrirliðinn hefur ekkert spilað frá því í ágúst en nú styttist í að hann komi aftur til leiks.

Ekkert hefur verið gefið út um hvenær Jordan gæti orðið leikfær en hann ætti að geta komið til álita í liðshópinn fljótlega. Jordan tók aðeins þátt í fyrstu tveimur leikjum Liverpool og fór meiddur af velli á móti Bournemouth 17. ágúst. Síðan hefur hann ekki komið við sögu.

Margir telja að Jordan falli mjög vel að þeim leikstíl sem Jürgen Klopp beitir og því verður spennandi að sjá hvernig hann kemur út í liðinu. Það verður að minnsta kosti gott að fá fyrirliðann inn í hópinn á nýjan leik og vonandi nær hann sér vel á strik. 





TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan