| Sf. Gutt

James Milner meiddur

James Milner er á meiðslalistanum. Hann lék síðast á móti WBA um miðjan desember. James er meiddur á ökkla og ekki er alveg ljóst hvenær hann verður aftur leikfær.

Liverpool hefur ekki vegnað vel í síðustu leikjum og það munar sannarlega um hinn reynda miðjumann. James hefur reyndar ekki leikið jafn vel og vonir stóðu til þegar hann kom til Liverpool í sumar en það munar um alla þegar á móti blæs.


 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan