| Grétar Magnússon

Coutinho skoraði þrennu

Brasilíumenn öttu kappi við Haíti í Copa America í nótt sem leið og unnu stórsigur 7-1.  Okkar maður Philippe Coutinho skoraði þrennu í leiknum og voru tvö markanna af flottari gerðinni.

Eftir að hafa gert 0-0 jafntefli í fyrsta leik í keppninni opnuðust allar flóðgáttir hjá Brasilímönnum.  Leikurinn fór fram á Rose Bowl leikvanginum í Pasadena og skoraði Coutinho fyrsta markið með þrumuskoti fyrir utan teig á 14. mínútu.  Á 29. mínútu bætti hann svo við öðru marki af stuttu færi af markteig.  Í uppbótartíma fullkomnaði hann svo þrennuna með öðru þrumuskoti fyrir utan vítateig og niðurstaðan eins og áður sagði 7-1 sigur Brasilíu.

Eftir leik sagði Coutinho í viðtali:  ,,Við áttum góðan leik og förum héðan glaðir í bragði.  Við þurfum nú að halda einbeitingu fyrir næsta leik (gegn Perú).  Við látum okkur dreyma um stóra hluti en við þurfum einnig að vera vel undirbúnir fyrir næsta leik því Perú eru með sterkt lið."

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan