| Sf. Gutt

Af EM


Wales og England komust bæði áfram úr sínum riðli á Evrópumótinu í Frakklandi í gærkvöldi. Sex leikmenn Liverpool komu við sögu.


Joe Allen átti stórleik þegar Wales vann magnaðan 3:0 sigur á Rússum. Joe fór á kostum á miðjunni og lagði upp fyrsta mark leiksins með frábærri stungusendingu á Aaron Ramsey. Neil Taylor og Gareth Bale skoruðu hin mörkin. Joe er búinn að vera frábær á EM. Danny Ward var á bekknum. 


Englendingar og Slóvakar skildu án marka. Fimm leikmenn Liverpool komu við sögu í leiknum. Daniel Sturridge, Adam Lallana, Nathaniel Clyne og Jordan Henderson hófu leikinn í enska liðinu. Nathaniel og Jordan voru ekki áður búnir að spila á mótinu. Martin Skrtel var í vörn Slóvaka og átti sannkallaðan stórleik. England sótti látlaust lengst af en vörn Slóvakíu gaf sig ekki. Slóvakar gætu komist áfram en Wales skaut enskum ref fyrir rass og vann riðilinn. 

Belgar unnu 3:0 sigur á Írum á laugardaginn og kom Christain Benteke inn á undir lok leiksins. Belgar töpuðu fyrsta leik sínum 2:0 fyrir Ítalíu og kom Divock Origi inn á sem varamaður í þeim leik. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan