| Sf. Gutt

Allt eða ekkert í Nice

Íslenska landsliðið mætir því enska í fyrsta sinn í mótsleik í Nice á mánudagskvöldið. Fimm leikmenn Liverpool gætu spilað á móti Íslandi. James Milner, Jordan Henderson, Daniel Sturridge, Adam Lallana og Nathaniel Clyne eru allir í enska hópnum.

Í húfi er sæti í átta liða úrslitum og verður leikið til þrautar. Hvernig sem fer þá er best að vona að fulltrúar Liverpool meiðist ekki gegn víkingunum okkar. Svo kæmi sér bara vel að leikmenn Liverpool komist í sumarfrí sem fyrst :)




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan