| Sf. Gutt

Sadio Mane til Liverpool?

Það hefur verið fátt tíðinda á leikmannamarkaðinum það sem af er sumri en nú greinir Liverpool Echo frá því að leikmaður sé á leiðinni til Liverpool. Um er að ræða Sadio Mane leikmann Southampton.

Í frétt Liverpool Echo segir að Sadio muni jafnvel fara í læknisskoðun á morgun. Kaupverð á að vera 30 milljónir sterlingspunda. 

Sadio, sem er frá Senegal, skoraði 15 mörk á síðustu leiktíð og átti þátt í mörgum. Af mörkunum 15 skoraði hann fjögur á móti Liverpool. 

Sadio er eldfljótur framherji og víst er að spili hann jafn vel og hann hefur gert hjá Southampton þá mun hann efla lið Liverpool. Hvort af vistaskiptum verður kemur í ljós á allra næstu dögum. 




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan