| Sf. Gutt

Haldið til Ameríku

Nú í dag tekur næsti kafli á undirbúningstímabili Liverpool við. Hann fer fram í Ameríku þar sem leiknir verða þrír leikir auk þess sem æft verður af kappi. 

Æfingaleikir Liverpool verða við Chelsea, AC Milan og Roma. Aðalliðið er nú að mestu komið til leiks en þeir sem tóku þátt í landsliðskeppnum sumarsins hafa verið að tínast heim á leið. 

Liverpool hefur unnið fyrstu fjóra æfingaleikina en nú verður spilað gegn sterkari liðum og það verður gaman að sjá hvernig gengur. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan