| Sf. Gutt

Getur orðið með þeim bestu!


Emile Heskey fyrrum framherji Liverpool telur að Philippe Coutinho geti orðið einn af allra bestu knattspyrnumönnum í heimi. Þeir Lionel Messi og Cristiano Ronaldo hafa verið taldir bestu leikmenn í heimi síðustu árin en Emile telur að Brasilíumaðurinn hafi burði til að komast á stall með þeim.


 ,,Ég held að hann búi yfir getu til að komast á sama stall og þeir Messi og Ronaldo. Ég tel að hann búi yfir jafn miklum hæfileikum og þeir og við höfum séð hann sýna okkur þá af og til. Hann þarf núna að sýna okkur þessa hæfileika oftar. En hæfileikar hans eru geysilega miklir. Ég sá þá þegar hann var hjá Inter og sum myndskeið sem maður hefur séð frá æfingum eru alveg mögnuð."

,,Svona leikmenn koma eiginlega bara fram einu sinni á hverju æviskeiði. Hann er stórkostlegur leikmaður. Það mun líka valda því að félög hafa áhuga á honum en hann er gríðarlega mikilvægur leikmaður fyrir Liverpool."


Það er af Emile Heskey að frétta að hann er trúlega hættur að spila knattspyrnu. Hann lék síðast með Bolton Wanderes en samningur hans við liðið rann út í vor. Emile lék með Liverpool frá 2000 til 2004. Hann skoraði 60 mörk í 223 leikjum. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan