| Grétar Magnússon

Salan á Benteke staðfest

Þann 20. ágúst síðastliðinn var salan á framherjanum Christian Benteke til Crystal Palace staðfest.


Benteke kom til félagsins síðastliðið sumar frá Aston Villa fyrir háa upphæð og ef marka má fréttir af sölunni hefur félaginu tekist að mestu að fá kaupverðið til baka.

Hann skoraði 10 mörk í 42 leikjum fyrir félagið á síðasta tímabili og skoraði meðal annars sitt fyrsta mark fyrir félagið í fyrsta leik sínum á Anfield, í 1-0 sigri á Bournemouth.

Eftir að Jurgen Klopp tók við stjórnartaumunum hjá félaginu virtist vera ljóst að Benteke væri ekki í áætlunum hans og tækifærum hans í byrjunarliði fækkaði mikið.  Hann spilaði svo sinn síðasta leik fyrir félagið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Sevilla í vor.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan