| Sf. Gutt

Dregið til undanúrslita!

Nú rétt í þessu var dregið til undanúrslita í Deildarbikarnum. Liverpool mætir Southampton. Fyrri leikurinn fer fram í Southampton og sá seinni á Anfield Road. Í hinni rimmu undanúrslitanna mætast Manchester United og Hull City. Þau leika fyrst í Manchester. Leikirnir fara fram í janúar. Úrslitaleikurinn fer svo fram á Wembley í febrúar.

Liverpool leikur nú í undanúrsitum Deildarbikarsins þriðju leiktíðina í röð og vonandi tekst að vinna keppnina í þetta sinn. Á síðustu leiktíð  tapaði Liverpool í úrslitum fyrir Manchester City eftir vítaspyrnukeppni og leiktíðina á undan féll liðið úr leik fyrir Chelsea. Vonandi verður nú allt þegar þrennt er!

En til að byrja með þarf Liverpool að ryðja Southampton úr vegi og það verður ekki auðvelt. Southampton komst í undanúrslit í kvöld með því að vinna Arsenal 0:2 í London.   

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan