| Grétar Magnússon

Dagsetningar á undanúrslitaleikjum

Búið er að gefa út hvenær Liverpool og Southampton leika í undanúrslitum enska Deildarbikarsins en eins og flestir þekkja er nú leikið heima og heiman.

Fyrri leikurinn fer fram á heimavelli Southampton miðvikudaginn 11. janúar kl. 19:45 og tveim vikum síðar, nánar tiltekið þann 25. janúar fer seinni leikurinn fram á Anfield en þá verður flautað til leiks kl. 20:00.

Sigurliðið úr þessum viðureignum mætir svo annaðhvort Hull City eða Manchester United í úrslitaleik sunnudaginn 26. febrúar á Wembley.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan