| Sf. Gutt

Dregið í FA bikarnum


Í kvöld var dregið til 3. umferðar í FA bikarnum. Liverpool fékk heimaleik á Anfield Road en ekki er ljóst hver mótherjinn verður. Liverpool mætir sem sagt annað hvort Newport eða Plymouth. Bæði liðin leika í fjórðu efstu deild. Liðin skildu jöfn án marka í Plymouth og þurfa að spila aftur. Vonandi verður, hvort liðið sem Liverpool fær, þessi leikur upphaf að langri og sigursælli bikarvegferð og sigri á Wembley í vor!


Liverpool hefur ekki unnið FA bikarinn frá því liðið vann West Ham United í vítaspyrnukeppni eftir 3:3 jafntefli í Cardiff. Sá leikur var seinna nefndur Gerrard úrslitaleikurinn. Liverpool hefur unnið bikarkeppnina sjö sinnum og það er tími til kominn að vinna keppnina á nýjan leik. 





 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan