| Sf. Gutt

Steven tileinkaði Ronnie Moran sigurinn!



Nokkrir af lærisveinum Ronnie Moran spiluðu á Anfield í dag þegar goðsagnalið Liverpool vann Real Madrid. Líklega þjálfaði Ronnie tíu af þeim 23 leikmönnum sem spiluðu fyrir Liverpool. Eftir leikinn ávarpaði Steven Gerrard viðstadda og tileinkaði Ronnie sigurinn.


,,Þetta hefur verið erfið vika fyrir núverandi leikmenn félgsins, þá sem spiluðu áður með liðinu og stuðningsmennina. Fyrir hönd allra hjá félaginu langar mig að segja að við stöndum öll við bakið á fjölskyldu Ronnie og vonandi hefur sigurinn í dag kætt fólkið hans eitthvað." Þetta var fallega sagt hjá Steven.

Annars fór Steven á kostum á móti Real Madrid. Hann skoraði sigurmark leiksins, lagði upp tvö mörk og fékk vítaspyrnu sem skorað var úr. Hann naut þess greinilega út í ystu æsar að spila á Anfield á nýjan leik.

,,Ég var æstur í að reyna að leggja upp mörk fyrir Aldo, Rushie og Fowler sem voru hetjurnar mínar þegar ég var að alast upp!"


 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan