| Sf. Gutt

Af Íslandsferð Jamie Carragher



Í gær var greint frá því hér á Liverpool.is að hægt yrði að hitta Jamie Carragher á Spot þar sem hann hefði komið til Íslands á ferð sinni um Norðurlönd vegna vinnu sinnar. 



Þessi frétt var birt í tilefni dagsins og eru hér með allir beðnir að afsaka hugsanleg óþægindi sem hafa hlotist af gabbinu. Kannski höfðu einhverjir trú á fréttinni. Um stund að minnsta kosti :)

Jamie var á Anfield í gær í vinnunni þar sem hann fylgdist með leik Liverpool og Everton sem einn af sparkspekingum Sky. Jamie var hinn kátasti með úrslitin þó hann hafi kannski ekki látið mikið á því bera :)

Jamie Carragher er reyndar á leiðinni til Íslands en það verður ekki fyrr en í næsta mánuði en þá verður hann heiðursgestur á árshátíð Liverpool klúbbsins. Stuðningsmenn Liverpool verða því að bíða aðeins með að fá tækifæri til að hitta Carra. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan