| Ingi Björn Ágústsson

Miðasala hefst á morgun

Árshátíð Liverpool klúbbsins með Jamie Carragher verður haldin í Kórnum þann 24 maí næstkomandi.

Dagskráin verður glæsileg að vanda og ljóst er að frábært kvöld er framundan.

Heiðursgestur er enginn annar enJamie Carragher sem er næstleikjahæsti leikmaður í sögu Liverpools, með 737 leiki á árunum 1997-2013. Carragher varð tvívegis enskur bikarmeistari með Liverpool, auk þess að vinna Meistaradeild Evrópu, UEFA bikarinn og enska deildarbikarinn þrisvar sinnum.  

Húsið opnar kl 19 fyrir fordrykk þar sem gestum gefst færi á að taka mynd af sér með heiðursgestinum.

Borðhald hefst kl 20 en 3ja rétta veislumáltið í boði Gumma Meiriháttar, matreiðslumeistara af Laugaás, sem tryggir að enginn fer svangur heim. 

Ingvar Jónsson, Papi, sér um veislustjórn. 

Aðrir sem koma fram eru Hreimur og Rúnar Eff, Arnar Dór og dj Jón Gestur sem klárar kvöldið til kl 1.
Frábær tilboð á barnum.

20 ára aldurstakmark.
Verð: 11.900 kr miðinn og fer miðasalan fram á www.midi.is

Matseðill:

Forréttur
Hægelduð bleikja krydduð með birki, fennel, fennelgrasi, capers og dill borin fram á brioche brauði.

Aðalréttur
Sæt basilkryddað lambafille, ljúffeng skógarsveppa kremsósa ásamt timian krydduðum kartöflum, ristuðu rótargrænmeti og basil olíu.

Eftirréttur
Karamellu súkkulaði með hnetu crumble, myntussírópi, jarðaberjum og mangó sorbet.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan