| Sf. Gutt

Í úrslit!

Það fór þó aldrei svo að Liverpool kæmist ekki í úrslitaleik. Liðið komst í gærkvöldi í úrslitaleik Lancashire Senior Cup en liðið teflir fram undir 23. ára liði sínu í keppninni. Úrslitaleikurinn verður annað hvort við Blackburn Rovers eða Fleetwood Town.

Liverpool fór á kostum í undanúrslitaleiknum og vann Rochdale 6:0 eftir að hafa verið 4:0 yfir í hálfleik. Yan Dhanda og Toni Gomes skoruðu tvö mörk hvor. Þeir Tom Brewitt og Matty Virtuescore skoruðu sitt markið hvor.

Liverpool: Kelleher, K. Lewis, Hart, Masterson, Whelan (McAuley 75. mín.), Brewitt, J. Williams, Virtue, T. Gomes, M. Gomes (Adekanye 66. mín.) og Dhanda. Ónotaðir varamenn: Firth og N. Phillips.

Maður leiksins: Yan Dhanda.

Lancashire Senior Cup skipaði fyrr á árum stóran sess og stóru félögin sendu jafnan sín bestu lið til leiks. En nú í senni tíð hafa vara- og unglingalið keppt og Liverpool hefur svo sem ekki alltaf sent lið til leiks í keppninni síðustu árin. Liverpool hefur 11 sinnum unnið keppnina og einu sinni deilt titlinum með öðru liði. Liverpool vann keppnina síðast 2010.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan