| Sf. Gutt

Liðshópurinn sem fer til Ástralíu




Liverpool heldur nú suður til Ástralíu þar sem liðið spilar við Sydney FC á miðvikudaginn. Fyrir utan aðalliðsmenn Liverpool þá er enginn annar en Steven Gerrard í liðinu! Auk hans eru þrjár aðrar gamlar kempur með í för. Jamie Carragher, Daniel Agger og Steve McManaman. Það verður gaman að sjá þessa leika listir sínar. Ástæðan fyrir því að Jamie kom ekki á árshátíð Liverpool klúbbsins var einmitt sú að hann var valinn í liðið fyrir leikinn í Sydney. 

Liverpool: Karius, Mignolet, Clyne, Alexander-Arnold, Randall, Matip, Gomez, Lovren, Klavan, Milner, Moreno, Gerrard, McManaman, Leiva, Stewart, Lallana, Wijnaldum, Wilson, Firmino, Sturridge, Origi, Woodburn, Brewster, Agger og Carragher.

Emre Can og Philippe Coutinho fara ekki  með þar sem þeir eru að fara spila með landsliðum sínum. 



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan