| Sf. Gutt

Jürgen Klopp á Íslandi!


Jürgen Klopp er staddur á Íslandi! Í það minnsta birti hinn ágæti vefmiðill 4-3-3 frétt þess efnis núna í kvöld. Í fréttinni er greint frá því að Jürgen sé í fríi á landinu og ætli sér að fara norður á Tröllaskaga til að fara á skíði til fjalla með þyrlu. Ekki er það ósennilegt því á Deplum í Fljótum er rekin þjónusta sem býður upp á slíkt og fleira. 

Jürgen þarf auðvitað að fara í frí eins og aðrir en trúlega verður hann ekki utan þjónustusvæðis á meðan hann verður á landinu við ysta haf! 


Hér má sjá fréttina á 4-3-3.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan