| Sf. Gutt
TIL BAKA
Mohamed Salah á leið til Liverpool
Mohamed Salah er á leiðinni til Liverpool samkvæmt fréttum áreiðanlegustu fjölmiðla Englands. Bæði Liverpool Echo og BBC greina frá því í kvöld að allt útlit sé á að Egyptinn verði leikmaður Liverpool á næstu dögum.
Talið er að Mohamed verði dýrasti leikmaður í sögu Liverpool. Kaupverðið gæti farið upp í 39 milljónir sterlingspunda. Andy Carroll er dýrasti leikmaður Liverpool hingað til en hann kostaði 35 milljónir.
Liverpool á að hafa boðið 28 milljónir í Mohamed fyrir nokkru en því tilboði var hafnað af forráðamönnum Roma. Viðræður hafa verið í gangi síðan og nú virðist samkomulag vera í augnsýn.
Liverpool reyndi að kaup framherjann árið 2014 en hann fór þá til Chelsea frá Basel. Hann komst aldrei í gang þar en vel gekk í láni hjá Fiorentina og svo Roma. Hann var svo seldur til Roma og lék sérlega vel á nýliðinni sparktíð.
Ekkert hefur verið staðfest opinberlega um sölu Mohamed Salah en málið skýrist væntanlega fljótlega!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Leggjum allt í sölurnar til loka! -
| Sf. Gutt
Sár endir á FA bikarvegferðinni -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Dregið í Evrópudeildinni -
| Sf. Gutt
Enn einn stórsigurinn í Evrópudeildinni! -
| Sf. Gutt
Munu ekki losna við okkur! -
| Sf. Gutt
Ryan Gravenberch á leiðinni -
| Sf. Gutt
Jafnglími í toppslagnum! -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konaté meiddur -
| Sf. Gutt
Jayden Danns fjarri góðu gamni
Fréttageymslan