| Sf. Gutt

Steven byrjaður með liðið sitt



Steven Gerrard byrjaði þjálfaraferil sinn sem þjálfari liðs í dag. Hann verður þjálfari undir 18 ára liðs Liverpool á komandi keppnistímabili.

Steven sagðist vera spenntur fyrir því að byrja að þjálfa liðið sitt. ,,Þetta er spennandi. Ég er búinn að bíða eftir þessu í allt sumar og var alltaf með þessa vinnu á bak við eyrað á meðan ég tók mér svolítið frí. Nú er komið að þessu og ég er mjög spenntur fyrir því að hefjast handa."

Steven er búinn að velja sér aðstoðarmenn og er staðráðinn í því að ná góðum árangri á fyrsta keppnistímabili sem þjálfari liðs.

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan