| Grétar Magnússon

Robertson og Can mæta til æfinga

Þeir Andy Robertson og Emre Can mæta til æfinga í dag í fyrsta sinn á undirbúningstímabilinu og hefur Jürgen Klopp því fengið alla sína leikmenn aftur til æfinga.


Tvöföld æfing er á dagskrá í dag og mun Robertson æfa í fyrsta sinn með nýju liðsfélögum sínum.  Emre Can, sem fékk lengra frí en aðrir vegna þátttöku sinnar með Þýskalandi í Álfukeppninni í júní, mætir einnig til æfinga á ný.  Hann var þó mættur á Melwood á laugardaginn var til að gangast undir ýmis próf eins og venja er með leikmenn sem mæta aftur eftir sumarfrí.

Liðið heldur svo til Þýskalands á morgun, miðvikudag, þar sem liðið mun mæta Hertha Berlin á laugardaginn kemur, í beinu framhaldi af því tekur liðið þátt í Audi Cup þar sem Bayern Munchen verður mótherjinn í fyrsta leik og svo verður mótherjinn annaðhvort Atletico Madrid eða Napoli.






TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan