| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Breytingar á leikjum í desember
Búið er að gefa út hvaða leikjum liðsins hefur verið breytt vegna beinna sjónvarpsútsendinga í Bretlandi. Um er að ræða leiki liðsins í desember.
Fyrri nágrannaslagur tímabilsins hefur verið færður til sunnudagsins 10. desember og byrjar kl. 14:15.
Útileikur gegn Bournemouth er á dagskrá helgina þar á eftir og er það sömuleiðis sunnudagsleikur, nánar tiltekið 17. desember og verður flautað til leiks kl. 16:30.
Heimsókn á Emirates leikvanginn til að etja kappi við Arsenal var lengi fyrirhuguð á Aðfangadag samkvæmt fréttum í Englandi en það mætti mikilli mótspyrnu stuðningsmanna beggja félaga. Leikurinn hefur því verið settur á föstudagskvöldið 22. desember og hefst hann klukkan 19:45.
Að lokum er það svo heimaleikur við Swansea á annan dag jóla, sá leikur var á dagskrá þennan dag kl. 15:00 en verður nú síðasti leikur dagsins og byrjar kl. 17:30.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Goðsagnirnar unnu! -
| Sf. Gutt
Enn fjölgar á Anfield! -
| Sf. Gutt
Góðverk fyrir góðan gest -
| Sf. Gutt
Goðsagnaleikur í uppsiglingu -
| Sf. Gutt
Joe Gomez í landsliðið á nýjan leik -
| Sf. Gutt
Tveir eftir heima -
| Sf. Gutt
Leggjum allt í sölurnar til loka! -
| Sf. Gutt
Sár endir á FA bikarvegferðinni -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar!
Fréttageymslan