| Sf. Gutt

Roy sendir hjartnæma kveðju


Roy Hodgson, fyrrum framkvæmdastjóri Liverpool, gleðst innilega yfir því að því gamla liðið hans sé komið í úrslitaleikinn í Meistaradeildinni. Á dögunum sendi hans gamla félaginu sínu hjartnæma kveðju.

,,Þetta er frábært. Ég gleðst innilega fyrir hönd félagsins og leikmannanna sem ég vann með á ákveðnum tímapunkti. Ég óska þeim, af öllu hjarta, alls hins besta í Kiev. Þeir mæta mjög góðu liði og ég hlakka til þessa úrslitaleiks."


Roy stjórnaði Liverpool frá því í júlí 2010 og þar til í janúar 2011. Frá því Roy yfirgaf Liverpool hefur hann stýrt West Bromwich Albioin og Crystal Palace. Í millitíðinni var hann landsliðsþjálfari Englands. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan