| Sf. Gutt

Mettilboð!


Samkvæmt fréttum traustra fjölmiðla, eins og BBC og Liverpool Echo, þá hefur Liverpool boðið metupphæð í Alisson markmann Roma. Tilboðið á að vera upp á 62 milljónir sterlingspunda sem yrði hæsta verð sem borgað hefur verið fyrir markmann. Fréttir stangast eitthvað á en tilboðið er talið eiga við rök að styðjast. 

Alison er landsliðsmarkmaður Brasilíu og stóð í marki þeirra á öllum leikjunum á HM. Hann hefur spilað með Roma síðustu tvö árin. Hann hefur verið orðaður við Liverpool síðasta árið eða svo. Síðustu daga hafa fjölmiðlar flutt fréttir af áhuga Chelsea á markmanninum. Það gæti því orðið hörð samkeppni um Alisson verði hann á annað borð til sölu. 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan