| Sf. Gutt

Tveir ungir skrifa undir

Tveir ungir og efnilegir leikmenn skrifuðu í gær undir samninga við Liverpool. Um er að ræða þá Rhian Brewster og Taiwo Awoniyi.

Óttast var um tíma að Rhian, sem er hér á mynd, myndi fara frá Liverpool og höfðu félög í Þýskalandi áhuga á honum. Hann er eitt mesta efni sem er hjá Liverpool. Hann varð heimsmeistari með undir 17 ára landsliði Englands í fyrra og fékk Gullskó keppninnar. 

Taiwo, sem er frá Nígeríu, kom til Liverpool 2015 en hefur síðan verið í láni hjá FSV Frankfurt, NEC Nijmegen og Royal Excel Mouscron. Hann stóð sig mjög vel hjá Royal í belgísku deildinni á síðustu leiktíð.


 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan