| Grétar Magnússon

Taiwo Awoniyi lánaður til Gent út tímabilið

Nígeríumaðurinn Taiwo Awoniyi hefur verið lánaður til belgíska félagsins KAA Gent út næsta tímabil.


Awoniyi kom til Liverpool sumarið 2015 frá heimalandi sínu og hefur spilað landsleiki með U-17, U-20 og U-23 ára liðum Nígeríu.  Hann hefur verið í vandræðum með að fá atvinnuleyfi í Bretlandi eftir komu sína til Liverpool hefur því verið lánaður út.  Síðustu þrjú tímabil hefur hann því spilað með Frankfurt, NEC Nijmegen og Royal Excel Mouscron.

Gent enduðu síðasta tímabil í Belgíu í fjórða sæti í deildinni og komust í síðustu umferð undankeppni Evrópudeildarinnar.  Tímabilið í Belgíu hefst á föstudaginn kemur en þá mætast Gent og Standard Liege á heimavelli síðarnefnda liðsins.

Awoniyi skrifaði nýlega undir nýjan samning við félagið sem gefur til kynna að eitthvað finnst mönnum í hann spunnið sem leikmann.  Hvað framtíðin ber í skauti sér með feril hans hjá Liverpool verður að koma í ljós en vonandi gengur honum vel í Belgíu í vetur.





TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan