| Sf. Gutt

Það var fyrir átta árum!

Í dag eru átta ár liðin frá því Liverpool Football Club var bjargað ef þau orð mætti nota um það þegar John Henry og félagar náðu félaginu okkar úr höndum þeirra George Gillett og Tom Hicks. Mikið hafði gengið á dagana á undan og baráttan um Liverpool F.C. fór fram fyrir rétti og lengi vel var tvísýnt um hvort meirihluti stjórnar Liverpool hefði sitt fram í að selja félagið til New England Sports Ventures. Allt fór á besta veg og John Henry og félag hans eignaðist Liverpool F.C. Eigendaskiptin voru staðfest föstudaginn 15. október 2010. 

Það hefur svo sem ekki allt gengið smurt frá því John og félagar hans eignuðust Liverpool F.C. Það er líka sjaldan sem allt gengur snuðrulaust í lífi þessa mikla knattspyrnufélags. Að minnsta kosti erum við stuðningsmenn Liverpool orðnir ýmsu vanir það sem af er þessarar aldar! Þó er ekki vafi á því að það var algjörlega nauðsynlegt að ná félaginu af þeim George og Tom. Í raun, ef allt hefði farið á versta veg, hefði félagið getað orðið gjaldþrota með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. 


Nú gengur rekstur félagsins mun betur og það er laust við skuldafargið sem var að sliga það. Stækkun Anfield Road tókst eins og best gat verið en eigendur Liverpool ákváðu að vinna að stækkun frekar en að reisa nýjan leikvang. Jürgen Klopp er búinn að  búa til frábært knattspyrnulið og í því eru stórgóðir leikmenn. Aðeins einn titill hefur unnist á valdatíð þessara eigenda en það styttist í þann næsta!


John Henry og félagar hans eiga kannski enn eftir að efna nokkur loforð, sem þeir gáfu þegar kaupin gengu í gegn, en stöðu Liverpool F. C. er ekki saman að líkja nú og fyrir átta árum þegar allt stefndi í strand. Áfram gakk!









TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan