| Sf. Gutt

Í höfn!


Sæti Liverpool í Meistaradeildinni á næsta keppnistímabili er nú í höfn. Úrslit í gærkvöldi gera stöðuna þannig að Liverpool endar í einu af fjórum efstu sætum hvað svo sem gerist í síðustu leikjunum.


Jürgen Klopp ítrekaði mikilvægi þess að vinna sér sæti í Meistaradeildinni á blaðamannafundi í morgun. Hann sagði að það væri sérlega mikilvægt vegna þess að ekki tókst að ná í sæti í keppninni fyrir yfirstandandi leiktíð.  

Reyndar getur Liverpool ennþá tölfræðilega unnið deildina. Arsenal leiðir deildina með 80 stig og á þrjá leiki eftir. Manchester City er stigi á eftir en á leik til góða. Liverpool er með 75 stig eftir 35 leiki. Aston Villa er í fjórða sæti með 67 stig. Liverpool getur náð 84 stigum. Vissulega eru afrar litlar líkur á að þrír sigrar Liverpool í síðustu þremur umferðunum dugi til meistaratitils. Arsenal og Manchester City geta varla annað en farið yfir 84 stig!

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan