| Heimir Eyvindarson

Real Madrid gefur Alonso upp á bátinn

Jorge Valdano, yfirmaður íþróttamála hjá Real Madrid, segir að það sé hæpið að liðið kaupi Xabi Alonso, eftir yfirlýsingu forráðamanna Liverpool um að hann sé ekki falur.

Xabi Alonso virtist vera á leið frá Liverpool fyrir ári síðan, þá til Juventus, en nú á vormánuðum hefur þrálátur orðrómur verið uppi um að hann kynni að vera á leið til Real Madrid, en Florentino Perez, nýr forseti Madridinga, fer sem kunnugt er mikinn á leikmannamarkaði þessa dagana.

,,Eftir yfirlýsinguna frá Liverpool á sunnudaginn sé ég ekki að okkur muni takast að fá Alonso til okkar á Santiago Bernabeu", segir Valdano.

,,Ég reyndi mikið að fá hann til félagsins fyrir nokkrum árum, meðan hann var hjá Real Sociedad en því miður tókst það ekki. Nú lítur allt út fyrir að það muni ekki heldur takast að þessu sinni."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan