| Sf. Gutt

Aftur sætur sigur á óvininum í austri

Liverpool vann aftur sætan sigur á Manchester United. Varalið félaganna mættust í kvöld í bikarkeppni Lancashire sýslu. Manchester United, sem lék á heimavelli, vann þessa keppni á síðasta keppnistímabili og meistararnir liggja því í valnum. Reyndar vann United keppnina líka 2008 og þá vann liðið Liverpool í úrslitum.

Guðlaugur Victor Pálsson sneri aftur til leiks eftir meiðsli og var í byrjunarliði Liverpool. Bæði lið tefldu fram nokkrum leikmönnum sem léku með aðalliðum félagsins í vikunni. Nathan Ecclestone lék til dæmis sinn fyrsta leik með aðalliði Liverpool í gærkvöldi. Það var einmitt hann sem kom Liverpool yfir í fyrri hálfleik. Hann skoraði þá eftir góðan samleik við Stephen Irwin. Manchester United jafnaði í síðari hálfleik þegar varamaðurinn Zoran Tosic skoraði beint úr aukaspyrnu. Bæði lið fengu góð færi en mörkin urðu ekki fleiri og leiknum lauk því 1:1. 

Vítspyrnukeppni tók við og piltarnir frá Liverpool voru sterkari í henni og Rauði herinn fór af hólmi með 4:3 sigur. Þeir Stephen Irwin, Daniel Ayala, Chris Mavinga og Nathan Eccleston skoruðu fyrir Liverpool. Dean Bouzanis, markmaður Liverpool, réði svo úrslitum með því að verja tvær vítaspyrnur. Vel af sér vikið hjá honum og Liverpool. Sem sagt Liverpool annar sigur á Manchester United í þessari viku! 

Manchester United: Zieler, Brown (Macheda 65. mín.), Dudgeon, Evans, Gill, De Laet, Stewart, Hewson (Tosic 58. mín.), King, Norwood (James 58. mín.) og Brandy.

Liverpool: Bouzanis, Darby, Threlfall, Ayala, Mavinga, Irwin, Eccleston, Amoo, Saric (Mendy 81. mín.), Guðlaugur Victor (Weijl 65. mín.) og Kacaniklic. Ónotaðir varamenn: Hansen, Kohlert og Brouwer.
 
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Daniel Ayala. Hann var sterkur og öruggur í hjarta varnar þeirra Rauðu.

Bikarkeppni Lancashire hefur farið fram frá því á leiktíðinni 1879/80 og á því geysilega langa og merka sögu. Liðin á norðvestur Englandi eiga þátttökurétt í keppninni. 

Liverpool hefur ekki unnið keppnina frá því á leiktíðinni 1972/73 leiktíðina og því kominn tími til að vinna hana. Liverpool á tíu sigra í keppninni.   
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan