| Grétar Magnússon
Golfmót Liverpoolklúbbsins "Liverpool Open 2012" verður haldið á hinum glæsilega Urriðavelli þann 11. ágúst nk.
TIL BAKA
Liverpool Open golfmótið 11. ágúst
Golfmót Liverpoolklúbbsins "Liverpool Open 2012" verður haldið á hinum glæsilega Urriðavelli þann 11. ágúst nk.Ræst verður út af öllum teigum klukkan 14:00 og eiga keppendur að mæta klukkan 13:00.
Mótið er punktakeppni með forgjöf þar sem hámarksforgjöf er 24 hjá körlum en 28 hjá konum. Einungis þeir sem hafa löglega skráða forgjöf samkvæmt GSÍ geta unnið til verðlauna.
Að sjálfsögðu fá meðlimir Liverpoolklúbbsins forgang í mótið og geta skráð sig með því að senda póst á [email protected] fyrir 27. júlí. Eftir það verður opnað fyrir skráningar á golf.is. Í fyrra fylltist mótið á met tíma og því um að gera að hafa hraðar hendur.
Glæsileg verðlaun og meðal annars má nefna
- Nándarverðlaun á öllum par 3 brautum.
- Lengsta drive á 9. braut.
- Ferðavinningur fyrir einn dreginn út úr skorkortum, ATH aðeins viðstaddir geta unnið til verðlauna.
Skylda er að vera vel merktur Liverpool Football Club í mótinu, mótsstjórn er heimilt að vísa mönnum frá séu menn ómerktir eða "illa" merktir.
Mótsgjaldið er 5.900 krónur og greiðist á staðnum.
Með Liverpool kveðju
Stjórn Liverpoolklúbbsins á Íslandi
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir!
Fréttageymslan

