| Grétar Magnússon

Styttist í Lucas

Brendan Rodgers segir að Lucas Leiva sé á réttri leið í endurhæfingunni eftir meiðsli sem hann hlaut á læri fyrr á leiktíðinni.


Lucas meiddist á upphafsmínútum fyrsta heimaleiks tímabilsins gegn Manchester City þann 26. ágúst.  Brendan Rodgers segir að enn sé nokkuð langt í að hann leiki með aðalliðinu en allt er á áætlun.

,,Lucas hefur verið úti á vellinum síðustu viku eða svo sem er frábært," sagði stjórinn.  Hann er ekki að gera flóknar hreyfingar ennþá en hann gerir mikið af hlaupum eftir beinni línu og þolæfingum."

,,Ég býst við að það séu ennþá þrjár vikur í hann en fas hans er frábært og hann mun líklega snúa fyrr en áætlað er."


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan