| Heimir Eyvindarson

Coutinho líklega með gegn Arsenal

Liverpool Daily Post segist hafa heimildir fyrir því að stefnt sé að því að Philippe Coutinho verði orðinn leikfær þegar Liverpool heimsækir Arsenal á Emirates laugardaginn 2. nóvember.

Eins og mönnum er líklega enn í fersku minni meiddist Brasilíumaðurinn illa á öxl eftir heldur harkalegar móttökur sem hann fékk hjá Ashley Williams í jafnteflisleiknum gegn Swansea þann 16. september síðast liðinn.

Þótt gengi Liverpool hafi kannski verið ásættanlegt þann tíma sem Coutinho hefur verið frá er samt sem áður alveg ljóst að liðið er mun betra með hann innan vallar en utan. Það er því mikið fagnaðarefni fyrir okkar menn að hann sé við það að verða leikfær á ný.

Coutinho mun vera byrjaður í léttri þjálfun hjá Liverpool og stefnan er sem fyrr segir sett á stórleikinn gegn Arsenal um aðra helgi.

Við vonum það besta og óskum Brassanum góðs bata. 



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan