| Sf. Gutt

Daniel farinn af æfa!

Kannski eru bestu fréttir vikurnar þær að Daniel Sturridge er búinn að vera á æfingum með félögum sínum í Liverpool og það án áfalla.

Eins og allir vita lék Daniel aðeins fyrstu þrjá leikina á leiktíðinninni áður en hann meiddist á landsliðsæfingu í byrjun september. Síðan hefur hvert bakslagið tekið við af öðru. Það endaði með því að Daniel var sendur til Ameríku um jólin þar sem hann gekkst undir meðferð hjá sjúkraþjálfurum í Boston.

En nú virðist útlitið betra og Daniel er búinn að vera við æfingar án áfalla í vikunni. Jafnvel er verið að gæla við að hann komi eitthvað við sögu í leik Liverpool og West Ham United á laugardaginn. Það er þó betra að vera hæfilega bjartsýnn í þeim efnum en bati Daniel virðist með betra móti um þessar mundir. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan