| Sf. Gutt

Við gáfum okkur ekki!


Jordan Henderson segir að Liverpool hafði verðskuldað sigurinn á móti Tottenham á þriðjudagskvöldið. Hann segir að leikmenn Liverpool hafi ekki gefið sig þrátt fyrir að Spurs hafi jafnað í tvígang og uppskorið sigur. Hann hafði meðal annars þetta að segja eftir leikinn.  


..Þetta var mjög mikilvægur leikur fyrir okkur. Við verðskulduðum sigurinn. Við höfum meðbyr og erum að spila frábærlega á köflum. Mér fannst við sýna gríðarlega mikinn skapstyrk í kvöld. Við komumst yfir en þeir komu aftur inn í leikinn. En við gáfum okkur ekki og náðum stigunum sem var geysilega mikilvægt fyrir okkur. Okkur finnst við geta unnið hverja sem er ef við höldum áfram að spila eins og við höfum verið að gera. Það eru frábærir leikmenn í liðinu hérna og við verðum bara að halda áfram að leggja hart að okkur á æfingum og ná svona úrslitum."

Það er þétt leikjadagskrá framundan hjá Liverpool og mikið í húfi á þeim þremur vígstöðvum sem liðið berst á. Vonandi heldur liðið áfram á sömu braut og þá er mögulegt að þetta keppnistímabil sem leit ekki vel út framundir jólin geti endað vel!


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan