| Grétar Magnússon

Endurtekinn leikur við Blackburn

Búið er að tilkynna hvenær Liverpool og Blackburn mætast í endurteknum leik í 8-liða úrslitum FA bikarkeppninnar.

Leikurinn fer fram á Ewood Park, heimavelli Blackburn, miðvikudaginn 8. apríl kl. 18:45 að íslenskum tíma.

Leikið verður til þrautar að þessu sinni og sigurvegarinn mætir Aston Villa í undanúrslitum á Wembley, annaðhvort laugardaginn 18. eða sunnudaginn 19. apríl.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan